Árgangur ´84 simply the best
15.12.2008 20:37:09 / Halla

Hittingur??

Sæl öll

Þar sem maður er í prófum og hefur þ.a.l. alveg fullt annað um að hugsa en prófalestur datt mér að hug að hafa smá hitting fljótlega. Kannski eitthvað svipað og þegar við hittumst á Óliver. Borða saman og tjútta saman líka :d
Pælingin er að hafa þetta þegar fólk sem þarf að fara í sjúkrapróf og þess háttar sé búið og þetta sé því annað hvort 17. jan eða 24. jan. Þannig spurningin er hvorn daginn vill fólk hafa þetta og hvar langar fólki mest að borða eða tjútta? Einhver sem getur kannski reddað einhverjum díl einhversstaðar eða þess háttar.

Hvað segiði, eruð þið ekki til í að lyfta ykkur aðeins upp eftir hátíðarnar og hitta gamla skólafélaga?

Kv. Halla sem á eitt próf eftir..

» 14 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 08:55:15 / Lára

Andri orðinn pabbi!

Andri okkar eignaðist stelpu í gærkveldi klukkan 8 ;)

Innilega til hamingju Andri ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

23.07.2008 21:58:00 / Íris

Fjölgun í barnahópinn...

Sæl öll sömul.

Það hefur fjölgað um 2 börn hjá okkur núna nýverið átti Kristjana litla prinsessu og Guðrún Jóna lítinn prins.. Innilega til hamningju með það stelpur og gangi ykkur vel með allt saman!

Langaði bara að uppfæra síðuna aðeins, það er alveg dautt hérna inni !

...Svo kemur Andri með næsta barn, hlökkum til að heyra fréttir !

KV. Íris

» 5 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 21:55:58 / Sissú

Myndir

Búin að henda inn myndalinkum ... Rejúníon ´08 ... Neðst í myndadálknum til vinstri á síðunni.
Við erum helvíti föngulegur flokkur af fullu fólki ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 14:17:17 / Íris

Frábær hittingur :)

Jæja elskurnar mínar ... ég vil bara þakka ykkur fyrir frábært kvöld í gært :) Gaman að sjá hvað margir gátu mætt þrátt fyirr stuttan fyrirvara.
Að mínu mati lukkaðist þetta bara ágætlega. Okkur tókst meira að segja að plana stærstan hluta 10 ára útskriftarrejúníonið sem verður eftir 2 ár ... Sævar er formaður þeirra nefndar :) Svo verða þeir sem tóku myndir endilega að setja þær á netið ;)
Ást knús og kossar ...
XXX Sissú ;)

» 12 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 21:42:08 / Íris

ATH Breytt staðsetning !

Jæja krúttin mín...

Við Sigþrúður höfum verið að leggja lokahönd á skipulagninguna haha ekki seinna vænna!
Staðan er víst sú að Vinakaffi býður ekki lengur upp á mat !! Þeir taka einungis á móti hópum og þá er bara kjötsúpa eða sjávaréttasúpa á boðstólnum.
Okkur leist ekki alveg nógu vel á það og töluðum við Mótel Venus, hann bauð okkur sem sagt upp á HLAÐBORÐ á 1200 kr.
Þeir sem búa í órafjarlægð og vilja gistingu geta fengið 2ja manna herbergi á 4.400 kr sem sagt ekki nema 2.200 kr á mann...  Gætum jafnvel fengið að tengja i-pot í græjurnar.. þar sem ekkert er um að vera þarna þetta kvöld...

Held að þetta sé miklu betri kostur því þarna höfum við allt sem okkur vantar... BAR, DANSGÓLF, OG MAT

Þannig að þetta lítur svona út:

Staðsetning: Mótel Venus, Borgarnesi
KL:
19:00
Matur:
pizza, súpa, brauðstangir, franskar, litlar kjötbollur í súrsætri sósu, og fl...
Money: 1.200 fyrir matinn og meira fyrir gistungu ef menn kjósa þann kost.

Þeir sem vilja gistingu hringja sjálfir og panta í síma: 437-2345

Ég vona að allir séu ánægðir með þetta þótt að þetta sé stuttur fyrirvari, en það er kannski líka bara gaman að ofskipuleggja þetta ekki, svo hittumst við bara almenninlega í haust og skipulagsnefndin verður kosin á Laugardaginn!

Vonandi mæta sem flestir hlakka SVOOO til að sjá ykkur !

ps. Endilega komið með albúm eða einhverjar skemmtilegar minningar.....

Allur árgangurinn í gamla andyrinu
Flottust !
Nýbúin að fatta hvað þau eiga að gera
Góðir tímar...
Kristín Halla og Halla
Muna svo að hringja í Höllu á Laugardaginn í Myndasíma G2jsfhfr :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 18:28:02 / Sissú

Mæting lofar góðu


Jæja ... Þá er ég búin að hafa sambandi við flesta


Þeir sem mæta pott þétt eru :
- Andri
- Anna
- Davíð Einar
- Drífa
- Ebbi
- Egger
- Eiríkur
- Guðjón
- Guðini
- Gunnar
- Gummi
- Helgi Pétur
- Íris
- Kristín Halla
- Kristín Lára
- Sissú
- Sólrún
- Sævar
- Þorkell

Mæta trúlega:
- Óskar (er að vinna ætlar að reyna að redda fríi)
- Helgi Gísli
- Jóhann Sævar

Þeir sem eiga eftir að gefa mér svar eru:
- Guðrún Jóna (ekki líkleg, hún á að eiga í lok mánaðarinns:)
- Heiðar (hann veit á lau hvort hann fari á sjó eða ekki)
- Helga (hún er að vinna en kíkir kanski eftir vinnu)
- Kristjana
- Lára
- Siggi

Þeir sem koma ekki eru:
- Auður (erlendis)
- Davíð Örn (verður að fagna brúðkaupsafmæli foreldra sinna í Munaðarnesi)
- Halla (verður að djamma með símastaffinu í borginni)
- Dóra (erlendis)

Dagskráin er einföld :) bara mæta hress með góða skapið í Vinakaffi klukkan sjö (19:00)
Íris æltar að hafa sambandi við þá í Vinakaffi á morgun og reyna að fá hópdíl hjá þeim.
Við skellum inn nánari upplýsingum um matseðil á morgun ;)
Ég geri ekki ráð fyrir því að það verði eithvað planað um daginn en ef einhverjir vilja hittast og hafa til þess stað og stund þá er það ekkert verra ... endilega komið með hugmyndir.

Varðandi maka - þá sé ég persónulega ekkert að því að bjóða þeim með. Fyrir mér eru allir velkomnir ... það væri bara gott að fá að vita af þeim mökum sem koma :)

Hlakka til að sjá sem flesta
Knús og kossar Sissú ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 22:45:34 / Sissú

FREKJAN ÉG :)

Ok. nú held ég að við séum búin að ræða þetta einum of mikið og enginn nennir að taka af skarið og negla neitt niður ... þá ætla ég að gera það fyrir ykkur :)

Ég og Drífa ætlum að mæta í Borgarnesið eftir hádegi á laugardaginn 17. og djamma af okkur rassgatið. Ekki væri verra ef einhverjir aðrir létu sjá sig ... ég var að veta fyrir mér léttir dagskrá ... eithvað eins og - Sund ... Grill/út að borða ... Djamm :) eithvað ódýrit og afslappað fyrist fyrirvarinn er ekki meiri en þetta.
Veðurspáin er ekkert spes en síðan hvenær hefur veðrið stoppað okkur í rok og rigningarrassgatinu Borgarnei ;)

Ef einhverjir fleiri ælta að koma úr borginni þá er ekki verra að reyna að smala saman í bíla :) við reynum allavega að gera þetta ...

Fyrir þá sem ekki geta séð sér fært að mæta vegna hræðilega stutts fyrirvara þá finnst mér réttast að við plönum hitting með haustinu. Fordrykk - út að borða - djamm ... Þá getum við verið búin að bóka sal og verið búin að plana herlegheitin mun betur ... en það kemur þá bara seinna :) ...

Ég sendi sms á línuna á morgun :)

Vona að ég og Drífa verðum ekki einar :)
Ást, knús og frekir kossar ... Frá Sissú ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 00:30:25 / Sissú

Borgo VS. Bærinn ???

Jæja elskurnar mínar ...
Nú fer að verða kominn tími á að negla eithvað niður með staðsetningu og dagsetningu. Ég er trúlega ekki sú eina sem þarf að plana þetta ögn betur ef þetta verður í Borgo og ef ég þarf að redda fríi þá er gott að hafa fyrirvara.

Ást knús og kossar ...
hlakka til að sjá ykkur ;)
XXX Sissú ...

» 26 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 13:50:17 / Helgi Pétur

10. maí 2008???

Mæli með laugardeginum 10 maí í herlegheitin, ef af þeim á að vera. Veit samt ekki hvernig prófatímabilum er háttað, hjá þeim sem það á við.. en ef þetta getur gengið, þá glæsilegt alveg hreint!
En hver er að stjórna þessu? Erum við að tala um kvöldverð og svo bara farið að skemmta sér?? Ef svo er þá mæli ég nú frekar með Borgarnesinu góða, því hópurinn mun aldrei halda lengi í borg óttans, nema hópurinn verði þeim mun minni.
En látið ljós ykkar skína og ritið niður athugasemdir við þessa dagsetningu og bara almennt það sem ykkur liggur á hjarta...

m.b.k. dagsetjarinn Helgi Pétur


» 19 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 11:25:28 / Halla

5. apríl 2008

Til hamingju með daginn allir sem fermdust með mér 5. apríl 1998! Í dag eigum við 10 ára fermingarafmæli! Njótið dagsins!

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 17:47:37 / Sissú

Könnun ...

Jæja ... datt í hug að henda inn könnun á hvar fólk vill hittast fyrir 10 ára herlegheitin :)

Endilega kjósið ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 10:34:29 / Halla

10 ára fermingarafmæli!

Sæl öll.. ætlaði bara að ath hvort einhver væri til í að taka að sér að skipuleggja 10 ára fermingarafmælishitting?? Spurning hvort fólk er jafnvel til í að hittast bara út að borða og jafnvel djamma eitthvert kvöldið þegar allir eru búnir í prófum?? Nema einhver sé tilbúinn að taka að sér skipulagningu á stærra batteríi?

Látið heyra í ykkur.

kv.Halla


» 25 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 23:13:09 / Halla

Bara ef einhver kíkir hingað ennþá...

Hæ hó.. ætlaði bara að ath hvort fólk ætlaði að kíkja á jólaball háskólanna 21. des.. það eru víst 2 böll í gangi, annað á Broadway með Á móti sól og Jet Black Joe og hitt á Nasa með Páli Óskari.. þannig það væri nú skemmtilegt ef fólk myndi deila hvort það ætli að kíkja og þá á hvort ballið það ætlar..

Svo veit ég að hagir hafa breyst hjá mörgum þannig það væri gaman ef fólk myndi uppfæra það sem það er að bralla þessa dagana.. t.d. er Lára orðin fyrsta 2 barna foreldrið í bekknum, til hamingju með það skvís :) Ég allavega uppfærði mínar "fréttir"..

kv.Halla


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 21:55:14 / Guðni

Páll Óskar á Nasa Laugardaginn 21 Jul allir að mæta

bara af því eingin hefur tjáð sig hér lengi þá er hvet ég alla til að mæta á Palla á Nasa á laug. bara nettur þúskall inn og frítt út síja OKBÆ

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Könnun
Hvernig skemmtir þú þér á laugardaginn ?